text
stringlengths 0
342
|
---|
### VORVÍSA |
Tinda fjalla, |
áður alla |
undir snjá, |
sín til kallar sólin há, |
leysir hjalla, |
skín á skalla, |
skýi sem að brá |
og sér fleygði frá. |
Tekur buna |
breið að duna |
björgum á. |
Græn því una grundin má. |
Viður hruna |
vatna funa |
vakna lauf og strá. |
Seinna seggir slá. |
Snjórinn eyðist, |
gata greiðist. |
Gumar þá, |
ef þeim leiðist, leggja á, |
hleypa skeið |
og herða reið |
og hrinda vetri frá. - |
Hverfur dimmu dá. |
Prúðir sækja |
lón og læki |
laxar þá. |
Sumir krækja silungsá. |
Veiðitækir, |
sporðasprækir, |
spretti hörðum á |
fjalli fýsast ná. |
Fjaðraléttir |
flokkar þéttir |
fugla þá |
synda ettir sumará, |
eða mettir |
strönd og stéttir |
stika til og frá, |
kæta loft og lá. |
Ærin ber |
og bærinn fer |
að blómgast þá. |
Leika sér þar lömbin smá. |
Nú er í veri |
nóg að gera, |
nóttu bjartri á |
hlutir hækkað fá. |
Grænkar stekkur. |
Glöð í brekku |
ganga kná |
börnin þekku bóli frá. |
Kreppir ekki |
kuldahlekkur, |
kætist fögur brá, |
búa blómum hjá. |
Rennur sunna. |
Sveinn og nunna |
sér við brá. |
Sízt þau kunna sofa þá. |
Sælt er að unnast. |
Mjúkum munni |
málið vaknar á, |
fegurst höldum hjá. |
Ekkert betra |
eg í letri |
inna má. |
Svo er vetri vikið frá. |
Uni fleti |
hver, sem getur, |
heimskum gærum á. |
Önnur er mín þrá. |
### ÍSLANDSMINNI |
Þið þekkið fold með blíðri brá |
og bláum tindi fjalla, |
og svanahljómi, silungsá |
og sælu blómi valla, |
og bröttum fossi, björtum sjá |
og breiðum jökulskalla. |
Drjúpi hana blessun drottins á |
um daga heimsins alla. |
### SAKNAÐARLJÓÐ |
Þá var ég ungur, |
er unnir luku |
föðuraugum |
Subsets and Splits