text
stringlengths 0
2.14k
|
---|
Síðan ríða þeir til Skaftártungu og svo fjall og fyrir norðan Eyjafjallajökul og ofan í Goðaland og svo ofan um skóga í Þórsmörk. |
Björn úr Mörk gat séð mannareiðina og fór þegar til fundar við þá. Þar kvöddu hvorir aðra vel. Sigfússynir spurðu að Kára Sölmundarsyni. |
"Fann eg Kára," segir Björn, "og var það nú mjög fyrir löngu. Reið hann þaðan norður á Gásasand og ætlaði hann norður á Möðruvöllu til Guðmundar hins ríka og þótti mér nú sem hann mundi heldur óttast yður. Þóttist hann nú mjög einmani." |
Grani Gunnarsson mælti: "Meir skyldi hann þó síðar óttast oss. Mun hann svo fremi vita að hann kæmi í kast við oss. Hræðumst vér hann nú alls ekki er hann er einn síns liðs." |
Ketill úr Mörk bað hann þegja og hafa engi stóryrði frammi. Björn spurði nær þeir mundu aftur. |
"Nær viku munum vér dveljast í Fljótshlíð," sögðu þeir, kváðu þá á dag fyrir honum nær þeir mundu á fjall ríða. Skildu þeir við þetta. Riðu nú Sigfússynir til búa sinna og urðu heimamenn þeirra þeim fegnir. Voru þeir þar nær viku. |
Nú kemur Björn heim og finnur Kára og segir honum allt um ferðir Sigfússona og fyrirætlan þeirra. Kári kvað hann sýnt hafa í þessu vinskap mikinn og trúleik við sig. |
Björn mælti: "Það ætlaði eg ef eg héti nokkurum manni trausti mínu eða umsjá að þeim skyldi mun í fara." |
Húsfreyja hans mælti: "Fyrr væri illa en þú værir drottinsviki." |
Kári dvaldist þar sex nætur síðan. |
sinn síðan. Skulu frændur mínir gera fjárskipti með okkur." |
"Það er líkara húsfreyja," segir Björn, "að fyrir öðru þurfi ráð að gera en það beri til skilnaðar okkars því að eg mun mér bera vitni um það hver garpur eða afreksmaður eg er í vopnaskipti." |
Þeir ríða nú um daginn á fjall og aldrei almannaveg og ofan í Skaftártungu og fyrir ofan bæi alla til Skaftár og leiddu hesta sína í dæl nokkura. En þeir voru á njósn og höfðu svo um sig búið að þá mátti ekki sjá. |
Kári mælti þá til Bjarnar: "Hvað skulum við til taka ef þeir ríða hér ofan að okkur af fjallinu?" |
"Munu eigi tveir til," segir Björn, "annaðhvort að ríða undan norður með brekkunum og láta þá ríða um fram eða bíða ef nokkurir dveljast eftir og ráða þá að þeim." |
Margt töluðu þeir um þetta og hafði Björn í sínu orði hvort að hann vildi flýja sem harðast eða hitt að hann vildi bíða og taka í móti og þótti Kára að þessu allmikið gaman. |
Nú er að segja frá Sigfússonum að þeir riðu þann dag heiman sem þeir höfðu sagt Birni. Þeir komu í Mörk og drápu þar á dyr og vildu finna Björn en húsfreyja gekk til dyra og heilsaði þeim. Þeir spurðu þegar að Birni. |
Hún sagði að hann var riðinn ofan undir Eyjafjöll og svo austur í Holt "því að hann á þar fjárheimtur," sagði hún. |
Þeir trúðu þessu og vissu að Björn átti þar fé að heimta, riðu síðan austur á fjall og léttu eigi fyrr en þeir komu í Skaftártungu og riðu ofan með Skaftá og áðu þar sem þeir Kári ætluðu. |
Skiptu þeir þá liði sínu. Ketill úr Mörk reið austur í Meðalland og átta menn með honum en hinir lögðust niður til svefns og urðu eigi fyrr við varir en þeir Kári komu að þeim. |
Þar gekk nes lítið í ána fram. Gekk Kári þar í fram og bað Björn standa að baki sér og hafa sig eigi allmjög frammi, "en ger mér gagn slíkt er þú mátt." |
"Hitt hafði eg ætlað," segir Björn, "að hafa engan mann að hlífiskildi mér en þó er nú þar komið að nú munt ráða verða. En með vitsmunum mínum og hvatleik þá mun eg þó verða þér að gagni en óvinum okkrum ekki óskeinisamur." |
Þeir stóðu nú upp allir og hljópu að þeim og varð skjótastur Móðólfur Ketilsson og lagði spjóti til Kára. Kári hafði skjöldinn fyrir sér og kom þar í lagið og festi í skildinum. Kári snaraði skjöldinn svo hart að spjótið brotnaði. Hann hafði brugðið sverðinu og hjó til Móðólfs. Hann hjó í móti. Sverðið Kára kom á hjaltið og stökk af í braut og á úlfliðinn Móðólfi og tók af höndina og féll sverðið niður og svo höndin en sverð Kára hljóp á síðuna Móðólfi og inn í millum rifjanna. Féll Móðólfur þá og var þegar dauður. Grani Gunnarsson þreif spjót og skaut að Kára en Kári skaut niður við skildinum svo að fastur stóð í vellinum en tók með hinni vinstri hendi spjótið á lofti og skaut aftur að Grana og tók þegar skjöld sinn hinni vinstri hendi. Grani hafði skjöld fyrir sér. Kom spjótið í skjöldinn og gekk þegar í gegnum og kom í lærið Grana fyrir neðan smáþarmana og þar í gegnum og svo í völlinn og komst hann eigi af spjótinu fyrr en félagar hans drógu hann af og bjuggu um hann í dæl nokkurri með hlífum. Maður einn skaust að og ætlaði að höggva fót undan Kára og komst á hlið honum. Björn hjó af þessum manni höndina og skaust aftur síðan að baki Kára og fengu þeir honum engan geig gervan. Kári slæmdi til þessa manns sverðinu og hjó hann í sundur í miðju. Þá hljóp Lambi Sigurðarson að Kára og hjó til hans með sverði. Kári brá við flötum skildinum og beit sverðið ekki á. Kári lagði til hans sverðinu framan í brjóstið svo að út gekk meðal herðanna. Varð það hans bani. Þá hljóp að Kára Þorsteinn Geirleifsson og ætlaði á hlið Kára. Hann fékk séð Þorstein og slæmdi til hans sverðinu um þverar herðarnar svo að í sundur tók manninn. Litlu síðar hjó hann mann banahöggi, Gunnar úr Skál, góðan bónda. Björn hafði særða þrjá menn þá er ætlað höfðu til að vinna á Kára og var þó aldrei svo frammi að honum væri nein raun í. Varð hann og ekki sár og hvorgi þeirra félaga á fundinum en þeir voru allir sárir er undan komust. Hljópu þeir á hesta sína og hleyptu út á Skaftá sem mest máttu þeir og urðu svo hræddir að þeir komu hvergi til bæja og hvergi þorðu þeir að segja tíðindin. Þeir Kári æptu að þeim er þeir hleyptu út á ána. |
Björn mælti: "Rennið þér nú brennumenn," segir hann. |
Þeir riðu austur í Skógahverfi og léttu eigi fyrr en þeir komu til Svínafells. Flosi var ekki heima er þeir komu þar og varð því þaðan ekki eftir leitað. Öllum þótti þeirra ferð hin svívirðlegasta. Kári reið í Skál og lýsti þar vígum þessum á hendur sér. Sagði hann þar lát húsbónda og þeirra fimm og sár Grana og kvað betra mundu að færa hann til húss ef hann skyldi lifa. Björn mælti og kvaðst eigi nenna að drepa hann fyrir mágsemdar sökum en kvað hann þó þess maklegan en þeir er svöruðu kváðu fá fúnað hafa fyrir honum. Björn kvað nú kost vera að fúnuðu svo margir af Síðumönnum sem hann vildi. Þeir sögðu þá þó ill að vera. Þeir Kári og Björn riðu þá í braut. |
**151. kafli** |
Kári spurði Björn: "Hvað skulum við nú til ráða taka? Skal eg nú reyna vitsmuni þína." |
Björn svaraði: "Hvort þykir þér undir því mest að við séum sem vitrastir?" |
"Já," sagði Kári, "svo er víst." |
"Þá er skjótt til ráða að taka," segir Björn. "Við skulum ginna þá alla sem þursa og skulum við láta sem við munum ríða norður á fjall. En þegar er leiti ber á milli vor þá skulum við snúa aftur og ofan með Skaftá og felast þar sem okkur þykir vænlegast meðan leitin er sem áköfust ef þeir ríða eftir." |
Kári mælti: "Svo munum við gera og hafði eg þetta ætlað áður." |
"Svo mun þér reynast," sagði Björn, "að eg mun ekki vera hjátækur í vitsmunum eigi síður en í harðræðunum." |
Þeir Kári riðu nú sem þeir höfðu ætlað ofan með Skaftá. Þá fellur áin sum í austur en sum í landsuður. Sneru þeir þá ofan með miðkvíslinni og léttu eigi fyrr en þeir komu í Meðalland og á mýri þá er Kringlumýri heitir. Þar er hraun allt umhverfis. |
Kári mælti þá við Björn að hann skyldi gæta hesta þeirra og vera á varðhaldi "en mér gerir svefnhöfugt." |
Björn gætti hestanna en Kári lagðist niður og svaf allskamma stund áður en Björn vakti hann. Hann hafði þá leidda saman hestana og voru þar hjá þeim. |
Björn mælti þá til Kára: "Allmjög þarft þú þó mín til. Mundi sá nú hafa hlaupið í braut frá þér er eigi væri jafnvel hugaður sem eg er því að nú ríða hér óvinir þínir að þér og skalt þú svo við búast." |
Kári gekk þá undir hamarskúta nokkurn. |
Björn mælti: "Hvar skal eg nú standa?" |
Kári svarar: "Tveir eru nú kostir fyrir höndum. Sá er annar að þú standir að baki mér og hafir skjöldinn að hlífa þér með ef þér kemur hann að nokkuru gagni. Hinn er annar að þú stígir á hest þinn og ríðir undan sem þú mátt mest." |
"Það vil eg eigi," sagði Björn. "Heldur þar margt til þess. Það fyrst að vera kann að nokkurar skæðar tungur taki svo til orðs að eg renni frá þér fyrir hugleysi ef eg ríð í braut. Hitt er annað að eg veit hver veiður þeim mun þykja í mér og munu ríða eftir mér tveir eða þrír en eg verð þér þá þó að engu gagni eða liði. Vil eg heldur standa hjá þér og verjast meðan auðið verður." |
Þá var eigi langt að bíða áður reknir voru klyfjahestar fram um mýrina og fóru þar með þrír menn. |
Kári mælti: "Þessir sjá okkur ekki." |
"Látum við þá um ríða," segir Björn. |
Síðan riðu þeir um fram en hinir sex riðu þá að fram og hljópu þegar af baki allir senn og sneru að þeim Kára. Fyrst hleypur að þeim Glúmur Hildisson og lagði til Kára með spjóti. Kári snerist undan á hæli og missti Glúmur hans og kom lagið í bjargið. Björn sér það og hjó þegar spjótið af skafti fyrir Glúmi. Kári hjó til Glúms höllum fæti og kom sverðið á lærið og tók undan fótinn uppi í lærinu og dó Glúmur þegar. Þá hljópu fram að Kára Þorfinnssynir, Vébrandur og Ásbrandur. Kári hljóp að Vébrandi og rak sverðið í gegnum hann en síðan hjó hann báða fætur undan Ásbrandi. Í þessi svipan urðu þeir sárir báðir, Kári og Björn. Þá hljóp að Kára Ketill úr Mörk og lagði til hans spjóti. Kári brá upp við fætinum og kom spjótið í völlinn. Kári hljóp á spjótskaftið og braut í sundur. Kári þreif Ketil höndum. Björn hljóp að þegar og vildi vega Ketil. |
Kári mælti: "Lát vera kyrrt. Eg skal gefa Katli grið og þó að svo verði, Ketill, oftar að eg eigi vald á lífi þínu þá skal eg þig aldrei drepa." |
Ketill svarar fá og reið í braut eftir félögum sínum og sagði þeim er eigi vissu áður tíðindin. Þeir sögðu héraðsmönnum tíðindin. Héraðsmenn gerðu þegar herhlaup mikið og fóru þegar með öllum vatnföllum og svo langt norður á fjall að þeir voru þrjú dægur í leitinni. En síðan sneru þeir aftur og fór hver til síns heimilis. En Ketill og þeir félagar riðu austur til Svínafells og sögðu þar tíðindin. |
Flosi tók lítt á þeirra ferð og kvað þó eigi víst um hvort hér næmi staðar "er Kári engum manni líkur þeim sem nú er á Íslandi." |
**152. kafli** |
Nú er að segja frá Birni og Kára að þeir ríða á sand og leiða hesta sína undir melbakka og skáru fyrir þá melinn að þeir dæju eigi af sulti. Kári varð svo nærgætur að hann reið þegar í braut er þeir hættu leitinni. Hann reið um nóttina upp eftir héraðinu og síðan á fjall og svo alla hina sömu leið sem þeir riðu austur og léttu eigi fyrr en þeir komu í Mið-Mörk. |
Björn mælti þá til Kára: "Nú skalt þú vera vin minn mikill fyrir húsfreyju minni því að hún mun engu orði trúa því er eg segi en mér liggur hér nú allt við. Launa þú mér nú góða fylgd er eg hefi þér veitta." |
"Svo skal vera," segir Kári. |
Subsets and Splits